Þvílík og önnur eins bongóblíða hefur bara varla verið hér á klakanum í áraraðir, allavega nær gullfiskaminnið mitt ekki svo langt aftur ;)
við vorum að keyra norður í nótt, milli 11 og hálf fjögur eða eitthvað og það lá þykk þoka yfir öllu norðurlandinu, alveg frá því við komum niður af Holtavörðuheiði þangað til við komum í bæinn. Þetta var eiginlega alveg eins og snjóbylur nema það var engin hálka, t.d. sáum við ekki Blönduós fyrr en rétt áður en við keyrðum yfir brúnna og ef maður sá 4 stikur í einu var virkilega farið að létta til. Þetta var vægast sagt skrýtið, en svona eftir á mjög gaman.
Við komumst nefnilega ekki fyrr af stað af því minns var á PINK tónleikum, mjög gaman en kannski heldur í styttra lagi, svo er ég að velta því fyrir mér hvort ég hafi séð ofsjónir í höllinni. ég nefnilega get næstum því svarið fyrir það að bleikur tók e-ð í nösina eitt skiptið milli laga, samt finnst mér það eitthvað svo skrýtið. En ég er náttúrulega alveg fröken inócent þegar kemur að fíkniefnum.
Svo er bara skólinn að byrja og læti, er einmitt að fara yfir stundaskrár beggja skólanna og skoða hvernig það kemur út fyrir mig, mér lýst ekkert á þetta. Einn áfanginn á Hvanneyri byrjar með prófi um 75 plöntutegundir eftir 2 vikur, líkurnar á því að ég fái hærra en 4,6 á því er frekar litlar í augnablikinu allavega.
Vitiði ég hélt að ég væri eins ástfangin af Sunnu Bunnu og mögulegt er að vera í vetur, en núna þegar hún verður skýrari og skýrari með hverjum deginum sem líður þá verð ég bara meira ástfangin af henni. Er eitthvað krúttlegra en 19 mánaða krýli sem kallar á mann á fullu, AUJUR!!! AUJUR!!! þessi yndislegheit hljóma alveg í eyrunum á mér þegar ég fer að sofa á kvöldin. Mér finnst það að fá að sjá Sunnu mína alveg nógu mikil ástæða til að halda áfram á Hvanneyri.
miðvikudagur, ágúst 11, 2004
Komdu fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig
Fyrri færslur
- To those whom it may concerne: það er búið að red...
- You are Barbouille! You are visually inventive.Whe...
- Það er búið að vera alveg geggjað að gera hjá mér ...
- Ég er eitthvað að velta þessum blessuðu forsetakos...
- Jæja nú eru allir litlu Grímseyingarnir mínir komn...
- Gleðilega hátíð!!! Það var svo yndislegt út í Grím...
- Katrín Ásta Bjarnadóttir og Helga Hrund Þórsdóttir
- ég á svo yndislega vini að það hálfa væri nóg, og ...
- Það er orðið ansi langt síðan ég bloggaði síðast, ...
- Jæja rússibaninn (geðslagið í mér) er á uppleið nú...
<< Heim